Samkvæmt 11.gr.laga um leikskóla skal vera starfrækt foreldraráð við skólann og að lágmarki skuli þrír foreldrar sitja í ráðinu.

Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiriháttar breytingar á leikskólastarfinu.

Í foreldraráði veturinn 2023 - 2024 eru:

  • Halldóra Ósk Ólafsdóttir
  • Thelma Dís Eggertsdóttir
  • Anna Margrét Eyþórsdóttir
© 2016 - Karellen