news

Vegna jarðhræringa

08. 02. 2024

Skert starfsemi Suðurnesjabæjar

Í ljósi þess að heitt vatn er farið á Suðurnesjum þarf að grípa til lokana víða í starfsemi sveitarfélagsins og þar til varalögn kemst í gagnið.

Gera má ráð fyrir að heitt vatn haldist á a.m.k. hluta af bænum fram eftir nóttu.

Fimmtudagur 8. febrúar

Sundlaugum hefur verið lokað

Íþróttamiðstöðvum hefur verið lokað

Skólar og félagsmiðstöðvar loka kl.17

Leik- og grunnskólar ásamt tónlistarskólum starfa til kl. 16:00 að öllu óbreyttu.

Ráðhús lokar kl. 16:00

Föstudagur 9. febrúar (og á meðan ekki er heitt vatn á sveitarfélaginu)

Allt skólastarf í leik- og grunnskólum auk tónlistarskólum fellur niður.

Öll íþróttamannvirki og sundlaugar verða lokuð.

Starfsemi Velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti:

oHefðbundin starfsemi í sérstöku búsetuúrræði að Lækjamótum

oBjörgin í Reykjanesbæ verður lokuð – opið í Lautinni

oHæfingarstöðin í Reykjanesbæ – verður lokuð

oDagdvöl og félagsstarf aldraðra í Miðhúsum og í Auðarstofu – verður lokuð

oHeima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu.

Ráðhús – verða lokuð, hægt að hringja í síma 425-3000 eða senda tölvupóst á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Starfsfólk Suðurnesjabæjar sem á þess kost er hvatt til að vinna í fjarvinnu á morgun föstudag. Aðgerðarstjórn Suðurnesjabæjar mun funda reglulega og miðla upplýsingum eftir þörfum.

© 2016 - Karellen