Í Skólanum er starfrækt foreldrafélag og er stjórn foreldrafélags skipað a.m.k. fjórum foreldrum. Markmið félagsins er að efla tengsl foreldra og starfsfólks, auka þátttöku foreldra í starfi leikskólanna og styðja við leikskólastarfið.

Allir foreldrar eru sjálfkrafa í foreldrafélaginu og eru hvattir til að taka virkan þátt í starfi þess.

Tilgangur félagsins er að:

  • Vinna að heill og hamingju nemenda skólans og styrkja skólann í hvívetna.
  • Vera samstarfsvettvangur foreldra/forráðamanna sem eiga börn í skólanum.
  • Stuðla að góðum skólabrag m.a. með því að efla samveru nemenda og foreldra og hvetja til virkar þátttöku.
  • Veita skólanum aðstoð vegna ákveðinna verkefna og starfa í skólanum.
  • Stuðla að auknum kynnum barna, foreldra og starfsmanna skólans.
  • Koma á framfæri sjónarmiðum og hugmyndum foreldra varðandi skólastarfið til stjórnenda og foreldraráðs.
  • Hafa góð tengsl við stjórnendur og annað starfsfólk skólans.

Í stjórn foreldrafélagsins veturinn 2023 -2014 eru:

  • Arna Björk Unnsteinsdóttir
  • Bríet Ósk Moritz
  • Sara Anna Danielsdottir
  • Heiður María Rúnarsdóttir
  • Kristín Rún Sævarsdóttir
© 2016 - Karellen